Langaði bara að deila með ykkur nýjustu uppgötvuninni minni, tilbúinni raita jógúrtsósu frá Patak's... ég er voða mikið fyrir jógúrtsósur og hef oft gert mína eigin með ab-mjólk, hvítlauk og gúrku en þessi er voða þægileg þegar maður hefur ekki tíma fyrir þannig dúllerí. Hún inniheldur líka myntu sem gefur afar skemmtilegt bragð og kemur vel út á hollustuskalanum, 64 kcal í 100 g og það eina óholla sem hún inniheldur er pínulítið af sykri (1,8 g í 100 g).
Mér finnst voða gott að nota hana með allskyns mat og líka hægt að skella henni oná brauð, hrökkbrauð eða hrískökur eða dýfa grænmeti í hana sem snakk. Er akkúrat núna að baka hnetusteik frá móður náttúru í ofninum og ætla að hafa sósuna með henni.
Og nei, ég er ekki á prósentum hjá Patak's en ég er opin fyrir viðræðum.
Annars er ég bara löt löt stelpa, bæði í hreyfingu og mataræði, er reyndar að sjá fyrir endann á ákveðnu verkefni sem hefur hangið yfir mér í allt sumar og valdið töluverðu stressi, mér finnst ég allavega hafa aðeins betri tíma núna til að hugsa um sjálfa mig og það er gott.
Meira síðar...
Jæja, ég er komin í ágætis rútínu og búin að setja upp lauslegt langtímaplan: ég byrja á því að mæta í ræktina 4x í viku, tek brennslu/þol og lyftingar til skiptis. Ég labba auk þess alltaf í vinnuna og heim aftur og þannig bætist við auka 40 mínútna brennsla fimm sinnum í viku.
Þegar mér finnst ég mega við meiri æfingu (kannski eftir 1-2 mánuði) þá fer ég í ræktina 5 sinnum í viku og aðlaga æfingarnar að því þegar þar að kemur. Hvort það muni síðan einhvern tímann fara upp í sex sinnum í viku verður bara að ráðast, fer eftir tímanum sem ég hef og þeim markmiðum sem ég vil ná.
Mataræði: er í ágætis rútínu-skorðum, borða lítið af óhollum mat dags daglega (ekkert nammi, snakk, kex, kökur eða skyndibita). Ætla að fínpússa mataræðið þegar ég er komin með ræktina 100% á hreint, ætla að einbeita mér að einu í einu fyrst um sinn, hafa þetta einfalt svo mér fallist ekki bara hendur og gefist upp eins og venjulega.
Og þetta plan mun eflaust þroskast og fínpússast á ýmsan veg en takmarkið er að útskrifast í júní 2009 og vera komin í frábært form í einhverjum æðislegum kjól ;uppi á sviði ;)
Er búin að léttast aðeins en ætla ekkert að einblína á þær tölur fyrst um sinn.
Jæja, long time no see!
Kom heim úr frábærri næstum 4 vikna útskriftarferð þann 10. júní, þar var ekki verið að spara við sig í mat né drykk... kom heim nokkrum peningum fátækari og kílóum ríkari en með bros á vör og smávegis brúnku. Var voða lengi að koma mér inn í rútínuna, var að byrja í nýrri vinnu og ætlaði síðan aldeilis að tækla hlaupaplan, var með takmarkið að þjálfa mig upp í að geta hlaupið 5 km á fínu nýju hlaupaskónum mínum. Eftir nokkrar misheppnaðar og sársaukafullar skokkæfingar komst ég að þeirri niðurstöðu að hlaup hentuðu mér ekki í bili vegna beinhimnubólgu. Var ansi svekkt og fúl yfir þessu enda orðin mjög spennt fyrir því að hlaupa. Dó þó ekki ráðalaus og fann mér labbiplan á netinu hjá honum ,,vini mínum" Hal Higdon sem ég er byrjuð að fylgja, gekk núna áðan í 35 mínútur í glampandi sól og steikjandi hita með góða tónlist í eyrunum. Hugmyndin er síðan að fylgja þessu plani auk þess að lyfta tvisvar í viku og gera líka einhverjar þolæfingar aðrar en hlaup í ræktinni, s.s. þrep eða skíðavél. Voðalega finnst mér samt erfitt að fara inn á líkamsræktarstöð þegar veðrið er svona fínt! (hef einmitt ekki fengið mig til þess ennþá....) Vonandi næ ég þá smám saman að léttast og ná upp þoli svo ég geti farið að reyna við hlaupin aftur.
Mataræði: ágætt fyrir utan bakkelsi og nammi sem alltaf er frammi á borði í vinnunni og of auðvelt er að grípa í með kaffinu, ekki síst þegar maður er þreyttur og stressaður. Þarf líka að passa að reyna að borða einhvern millibita (skyr) milli morgunmatar og hádegismatar, oft er svo mikið að gera í vinnunni fyrir hádegi að ég kemst ekki einu sinni á klósettið, hvað þá til að fá mér eitthvað að borða!
Voðalega er ég orðin þreytt á því að vera alltaf á byrjunarreit. Þetta verður síðasta skiptið!
Þyngdin núna: í kringum 84 kg (var 80 áður en ég fór út)
Matur:
hafragrautur með rúsínum og léttmjólk
1 glas ávaxtasafi
1 bolli grænt te
vatn
1/2 L létt-abmjólk
1 ristuð gróf brauðsneið með osti og sykurlausri sultu
2 hrökkbrauð með kotasælu, annað með dukkah, hitt með kryddi
vatn
1 bolli grænt te
1 brjóstsykur
vatn
1 diskur ýsurétturinn síðan í gær
vatn
1 glas appelsínusafi
hrökkbrauð með osti
Hreyfingin var engin, var frekar slöpp í gær þegar ég fór í ræktina og leið enn verr í dag þannig að ég ákvað að hvíla mig. Tók í staðinn massífa lærdómstörn í allan dag, er alveg ánægð með það.
(hélt ég hefði publishað þennan póst í gær en hann virðist bara hafa farið í drafts)
Matur:
hafragrautur með rúsínum og léttmjólk
1 lítið glas ávaxtasmoothie
1 bolli grænt te
vatn
1 skyr.is drykkur
1 létt cappuccino
appelsína
vatn
1 glas goslaust Pepsí Max (oj!)
nokkrar baby gulrætur
2 hrökkbrauð með kotasælu og dukkah
3 pistasíur
1 brjóstsykur (erfitt að eiga til Tyrkisk peber á heimilinu...)
Kínversk ýsa að hætti Café Sigrúnar með grænmeti
Brún hrísgrjón
Vatn
1 stór skál Special K með léttmjólk
1 glas appelsínusafi
Hreyfing:
60 mínútna brennsla í ræktinni: 3 x 20 mínútur á skíðavél, þrepavél (sko mig, Sperra!) og bretti. 464 kcal voru spændar upp, þeirra er ekki saknað ;)
Bara að ég hefði verið jafn dugleg að læra í dag og ég var í ræktinni og mataræðinu...
Vá, 19 dagar... það er alveg ótrúlega stutt!
Ég er ekki dauð úr öllum æðum enn, fór í próf á mánudaginn síðasta og búin að vera frekar slöpp síðan þá, átti síðan 25 ára afmæli á miðvikudaginn, fór út að borða á Humarhúsið með kærastanum... og fór út að borða í hádeginu í dag með vinum mínum, af sama tilfefni.
Mataræðið hefur ekki verið tipp-topp en ég er þó ekki dottin í neitt sukk. Lungnavesenið mitt hefur verið með smávegis kombakk, með hitavellu og eyrnaverk, en er orðin þokkaleg í dag svo ég held ég treysti mér í ræktina á morgun, hef annars verið dugleg að fara út að labba í síðustu viku þó ég hafi ekki farið í ræktina síðan á föstudaginn.
Ég verð að segja að það skiptir mig gríðarlegu máli að hafa staðið mig svona vel bæði í ræktinni og í mataræði í 2 vikur, það er langt síðan mér hefur tekist eitthvað sambærilegt. Ég hef lést um ca. 1 kg á þessum tíma og - það sem skiptir aðalmáli - sé bara ágætis mun á líkamanum, bumban er minni og ég er öll aðeins stinnari og flottari. Prófabakverkurinn hefur heldur ekkert látið á sér kræla.
Ég er semsagt búin að sanna það fyrir sjálfri mér að ég geti þetta alveg og að árangurinn muni pottþétt koma. Frá og með morgundeginum mun ég halda áfram á þessari góðu braut, skrifa matardagbók og halda mig við ræktarprógrammið.
Best að ráðast aðeins á bækurnar... ég er víst í prófum líka :(
Hreyfing dagsins: 50 mínútna rösklegur göngutúr í góða veðrinu
Matur:
hafragrautur með léttmjólk og rúsínum
1/2 glas froosh
1/2 L vatn
1 skyrdrykkur
2 döðlur
1 lítið létt-skyrboozt
Mexíkanskur matur: tortillur með kjúkling, sýrðum rjóma, osti og allskonar, rosa gott
1 lítil coke zero
1/2 L vatn
2 lítil hrökkbrauð með léttsmurosti
1/2 glas súkkulaðisojamjólk
6 cashew hnetur
1 glas pepsi max
Hreyfing: 60 mínútna brennsla (25 á skíðavél, 35 á bretti). Tók meira að segja smá hlaup á 8,5 á brettinu.
(Ætlaði að blogga í gær en netið var með vesen)
Matur:
1 glas súkkulaðisojamjólk
hafragrautur með léttmjólk og rúsínum
1/2 glas froosh
1 bolli grænt te
1 lítil skyrdós
1/2 L vatn
2 lítil hrökkbrauð með léttsmurosti, tvö með kotasælu og eitt með 26% ostsneið
1/2 L vatn
stór diskur kjúklingarétturinn frá því á þriðjudaginn, með smá 10 % sýrðum rjóma
1/2 L vatn
lítill diskur kjúklingaréttur
afgangurinn af súkkulaðibúðingnum síðan í gær + 1 kiwi brytjað út á.
Hreyfing:
40 mínútna göngutúr
Upphitun á skíðum (70 kcal), lyftingar (efri partur) 45 mínútna brennsla á bretti (302 kcal)
Mjög góð æfing hjá mér í gær, tókst að þyngja ágætlega í flestum lyftingum, varð ekkert smá glöð að geta þyngt í brjóstpressunni enda er það minn veikasti punktur (og axlirnar líka). Ætlaði síðan að stökkva á brettið í 20 mínútur og horfa á Klovn (ógeðslega fyndnir þættir) en dagskránni var eitthvað seinkað þannig að ég endaði á því að vera á brettinu í 45 mínútur, kvarta svosem ekki yfir því.
Svo er takmarkið að taka 60 mínútna brennslu í dag, þvílík viðbrigði, mér finnst það bara vera mjög stutt æfing!
Matur:
1 glas súkkulaðisojamjólk (hugsa hana sem orku, t.d. í staðinn fyrir banana áður en ég fór út í göngutúr)
hafragrautur með rúsínum og léttmjólk
1 glas smoothie
1 bolli grænt te
1/2 L vatn
2 lítil hrökkbrauð (Finncrisp original), annað með kotasælu, hitt með léttsmurosti
nokkrar pistasíur
1 lítil jógúrt
1 epli
1/2 L vatn
1 diskur kjúklingarétturinn frá því í gær
1/2 skál súkkulaðibúðingur (úr 5% sýrðum, Oetker búðingsdufti og með sætuefni)
2 lítil hrökkbrauð með léttsmurosti
1/2 L sódavatn
Hreyfing:
35 mínútna göngutúr
75 mínútna dansæfing
Var alveg laus við harðsperrur í gær en í dag hafa þær ákveðið að láta á sér kræla, innri lærvöðvarnir (sem lyftu 95 kg á mánudaginn) hreinlega öskra á mig og ég labba soldið eins og spýtukall, bara hressandi.
Dagurinn í gær var fínn, tók lyftingar (neðri part) í ræktinni og kom sjálfri mér á óvart hversu gríðarlegur styrkur liggur í þessum löppum mínum, tókst að lyfta 12 x 85 kg, svo 12 x 90 kg og að lokum 12 x 95 kg í einu tækinu! Tókst líka að þyngja í öllum æfingum en fann varla fyrir harðsperrum í dag.
Matur (í dag):
hafragrautur með súkkulaðisojamjólk (hún er ekki orkulítil en ákvað að prófa til að peppa upp á grautinn, rosa er hún góð! Passa mig samt á henni, inniheldur slatta af sykri, borða því ekki rúsínur með grautnum)
stórt glas nýpressaður trópí
1 bolli grænt te
1 epli
1/2 L vatn
1 flatkaka með léttsmurosti
1 lítil skyrdós
1 próteinbar
1/2 L vatn
nokkrar pistasíur
1 lítið glas froosh
1/2 L sódavatn
1 lítill diskur kjúklingaréttur með brúnum hrísgrjónum og spergilkáli, í brasilískri krukkusósu (svipuð og salsasósa, fitulítil og góð)
1 lítið glas súkkulaðisojamjólk
1 flatkaka með ostsneið (17 %)
Hreyfing:
35 mínútna göngutúr
Fór ekki í ræktina í kvöld, gleymdi mér í lærdóm og borðaði kvöldmatinn of seint og fór líka í eitthvað lærdómspanikk, fannst ég ekki hafa gert neitt af viti í dag og að ég yrði nú að vera duglegri. Ekki gott. Verð að fara að vakna fyrr á morgnana svo ég sé ánægð með dagsverkið og geti leyft mér að fara í ræktina á kvöldin. Er nefnilega týpan sem kemst ekki í gang að læra fyrr en uppúr hádegi og læri venjulega framyfir miðnætti og gengur hrikalega illa að vakna á morgnana. Á sama tíma vil ég fara í ræktina á kvöldin, slaka síðan vel á í gufunni og koma þreytt heim og skríða uppí rúm.
Er líka búin að ákveða að vera ekki að setja áherslu á að brenna og lyfta á sömu æfingu, það verður bara svo löng æfing, alveg 2 tímar... og hátt í þrír tímar með sturtu, gufu og því að koma sér í ræktina og aftur heim. Held ég reyni því að fara oftar en hafa styttri æfingar.
Jæja, dagurinn í gær var fínn, fór í ræktina og tók góða æfingu, lyftingar og 60 mínútna brennsla. Fór reyndar að finna fyrir í lungunum aftur, frekar leiðinlegt. Mataræðið var tipp-topp fram að kvöldi, þá tók við rauðvínssötur og alls konar gúmmilaði. Varð frekar fljótt södd, gat sem betur fer ekki troðið endalaust í mig - en góðar voru veitingarnar. Eftir stutt stopp í bænum (voðalega finnst mér eitthvað sjaldan gaman að djamma niðri í bæ...) fór ég bara heim. Stóð við planið mitt um að verða ekki þunn en fór þó ekki í ræktina, bæði vegna téðra lungnavandamála og að mér tókst að fá myndarlega blöðru á ilina við að labba heim úr bænum á óþægilegum stígvélum. Sveiattan!
Mataræðið í dag hefði nú mátt vera betra, er m.a. búin að borða tvær beyglur, alls ekki búin að borða nógu oft og eitthvað svona slen yfir manni... allt í allt er ég þó mjög ánægð með þessa fyrstu viku mína, kom í raun sjálfri mér á óvart hvað ég fór létt með þetta og langaði sjaldan í óhollustu.
Núna er líka ekkert djamm fram að útskriftarferð þannig að áfengið er nú ekki að fara að spilla fyrir manni.
Matur:
1 skál Cheerios með léttmjólk
1 glas ávaxtasmoothie
1 banani
baby gulrætur
1/2 L létt ab-mjólk
1 L vatn drukkinn í skólanum
1 bolli grænt te
2 hrökkbrauð, annað með léttsmurosti, hitt með hummus
1 kaffijógúrt
1 Firefly drykkur (detox: með sítrónu, lime og engifer)
Taílenskar risarækjur með hvítlauk, pipar og grænmeti
Smá massaman karrí með nautakjöti
Hrísgrjón
1 lítill bjór
Hálft lakkrísdúndur í eftirrétt
1/2 L pepsi max
Hreyfing: 40 mínútna rösklegur göngutúr.
Svaf í 4 tíma í nótt vegna lærdóms og stresss... Var þess vegna engan veginn að höndla það að fara í ræktina þegar ég kom heim eftir strangan skóladag. Dreif mig samt út í göngutúr. Síðan höfðum við kærastinn það notalegt, fórum út að borða á taílenskan veitingastað og fórum síðan heim að horfa á dvd. Mig langaði svo í meiri bjór eftir að ég var búin að drekka einn, mmmmmm... beer... en í staðinn splæsti ég á mig Pepsi max (hef ekki drukkið það núna í a.m.k. 2 vikur) og síðan skiptum við einu súkkulaði á milli okkar, við kunnum okkur ágætis hóf að þessu leyti og borðum sjaldan nammi eða snakk.
Svo er það bara ræktin á morgun á fullum krafti... og síðan sukkerí um kvöldið reyndar, rauðvínskvöld með bekkjarsystrum mínum. Ætla samt að reyna að verða ekkert þunn svo ég komist í ræktina á sunnudaginn og passa að tapa mér ekki alveg í góðgætinu sem verður á boðstólum.